477_c72234919db1f5fe
ÍMYND OG ORÐSTÍR
Góður orðstír fyrirtækisins er ein dýrmætasta eign okkar og forsenda þess að viðskiptavinir vilji eiga með okkur samstarf. Við erum þess meðvituð að hvaðeina sem við aðhöfumst, hvort sem er með daglegri framgöngu eða í kynningarstarfi, hefur áhrif á ímynd ADVEL. Jafnframt teljum við það skyldu okkar að rækja markvisst upplýsinga- og kynningarstarf til að viðskiptavinir átti sig á eðli þjónustu okkar. Í því ljósi  kappkostum við að greinargerðir, fræðslu- og kynningarefni á okkar vegum séu á skiljanlegu mannamáli en ekki á sjálfhverfu fagmáli lögfræðinnar. 
ADVEL - Suðurlandsbraut 18 - 108 Reykjavík - Sími 520 2050 - Fax 552 2050
Kt. 621206-2300