KJARKUR OG FRUMKVÆÐI
Við þorum að horfast í augu við sannleikann og segjum hann hiklaust, jafnvel þótt það kosti okkur óþægindi og sársauka, en gætum þess jafnframt að ganga aldrei í berhögg við trúnað gagnvart viðskiptavinum.
Við höfum kjark, þekkingu og metnað til að taka að okkur flókin og krefjandi mál sem reyna á skarpskyggni okkar og þrautseigju. Jafnframt höfum við áræðni til að leita nýrra og skapandi lausna á erfiðum lögfræðilegum vandamálum og lítum á öra framþróun sem kjörið tækifæri til að sýna árvekni og aðlögunarhæfni.