MANNAUÐUR
Við höfum á að skipa áhugasömu, vel þjálfuðu og sérhæfðu kunnáttufólki sem starfar í krefjandi en jafnframt hvetjandi umhverfi. Við leggjum áherslu á að starfsfólkið taki virkan þátt í framþróun fyrirtækisins með frumkvæði sínu og miðlun þekkingar. Við virðum hvert annað á jafnréttisgrundvelli og viljum að fyrirtækið sé vettvangur þar sem fólk nýtur vinnu sinnar og deilir skoðunum, jákvæðum starfsanda og metnaði til að bera af. Jafnframt gerum við okkur ljóst að ekkert fyrirtæki er eyland í mannlegu samfélagi og því leitum við skynsamlegs jafnvægis milli krefjandi vinnuálags og friðhelgi einkalífs starfsmanna.