ADVEL - lögfræðiþjónusta er nýtt nafn á Fulltingi - lögfræðiþjónustu.

Lögfræðistofan Fulltingi ehf. var stofnuð árið 2001.  Stofan óx hratt og fyrir röskum tveimur árum var starfseminni skipt milli eigenda í tvö sjálfstæð fyrirtæki með mismunandi starfssvið: Fulltingi - lögfræðiþjónustu og Fulltingi - slysa- og skaðabótamál.

Breyting á nafni Fulltingis - lögfræðiþjónustu nú undirstrikar fullan aðskilnað þessara tveggja lögmannsstofa.

Tölvupóstföng starfsmanna ADVEL – lögfræðiþjónustu hafa fengið endinguna @advel.is, heimasíða stofunnar er nú aðgengileg á vefslóðinni www.advel.is og nýtt símanúmer hennar er 520 2050.

Starfsmenn ADVEL lögfræðiþjónustu hlakka til áframhaldandi farsæls samstarfs á komandi misserum.

ADVEL - Suðurlandsbraut 18 - 108 Reykjavík - Sími 520 2050 - Fax 552 2050
Kt. 621206-2300